Sólrisuleikrit! Mikilvægar upplýsingar

Fyrir þá sem ætla að panta sér miða á helginni á leikritið, þá er hægt að hafa samband í síma 846-6367. Orðið hefur smá vandræði í sambandið við hitt númerið. En þetta á bara við núna um helgina, svo verður aftur hægt að hringja í hitt númerið 450-5565

Ásgeir

Sólrisa 2010

Þá er heldur betur farið að styttast í Sólrisuvikuna, þar sem setningin mun far fram á Ömmu Habbý næstkomandi Föstudag 26. Febrúar kl. 12:30. Þar verður hún sett með formlegum hætti og mun 3. bekkur menntaskólans bjóða upp á veigar.
Að sjálfsögðu mun skrúðgangan fara fram eins og ávallt frá Menntaskólanum út á Ömmu Habbý, og munu menntskælingar hefja göngu sína klukkan 12:15 frá menntaskólanum með drumbuslætti og hávaða um götur Ísafjarðar.

Dagskráin er kominn á sinn stað hér í tengli til vinstri, og mun Sólrisublaðið vera dreyft í hús í ísafjarðarbæ á morgun.

Ath. Smá villa hefur komið upp og vill ég taka það fram hér að allir Hádegisviðburðir munu hefjast 12:15 en ekki 12:30 eins og stendur í blaðinu.

Tommaborgarar hafa staðfest komu sína Fimmtudaginn 4 mars og mun það hefjast stundvíslega kl. 12 í mötuneyti skólans. Öllum er að sjálfsögðu velkomið þangað eins og á alla viðburði þessarar viku.

Söngkeppnin verður á sínum stað í Íþróttahúsinu á föstudaginn og mun svo vikunni ljúka með ekki minna en Skítamóral á Vaxon, í bolungarvík.

Ef þið hafið einhverjar frekari spurningar varðandi vikuna má ná í mig í síma 846-6367

- Ásgeir

Sólrisa 2009

Hæ hæ öll saman

Það er gaman að segja frá því að í þessum skrifuðu orðum er verið að leggja lokahönd á dagskrá Sólrisunar 2009.  Blaðið fer í prentun á eftir og leikararnir í leikritinu eru að leggja lokahönd á smáatriði í leik sínum í ,,Draumur á Jónsmessunótt".

Skólablaðið verður að sjálfsögðu borið út til allra heimila í Ísafjarðarbæ og nærsveita, en þar verður dagskrá Sólrisunar á miðopnu.  Einnig er hægt að fylgjast með hér á heimasíðu Sólrisunar.

Góðar stundir

Bíósýningunni frestað!

Fresta þarf sýningunni á Dugguholufólkinu sem átti að vera í bíóinu í kvöld. Auglýst verður fljótlega hvenær sýningin verður.

Rokksúpunni aflýst

Rokksúpan sem átti að vera í kvöld kl. 21 er aflýst vegna veðurs.

Aflýst var öllu flugi í dag svo hljómsveitirnar að sunnan komust í til bæjarins, svo þvímiður verður að aflýsa Rokksúpunni þetta árið.
« Fyrri síða Síða 1 af 3 Næsta síða »
1 2 3

Fréttasafn